Fréttir

Total items: 1194

SR - Björninn 7 - 4

Dags: 02.03.2005 10:34


Í gærkvöldu mættu SR-ingar í Egilshöllina til að spila við Björninn í Íslandsmóti karla. Björninn hafði leikið vel í síðustu leikjum og SR-ingar mættir með sitt sterkasta lið eftir stórsigur á SA fyrir norðan, svo búast mátti við góðum leik. SR byrjaði leikinn afar vel og komst í 3 - 0 með góðu spili og baráttu áður en Björninn lagaði stöðuna í 3 - 1 fyrir lok fyrstu lotu. Ekki virtist Björninn til stórræðanna eftir þessa lotu en í annarri lotu snerist dæmið við og Björninn náði að jafna 3 - 3. Hér virtist vega þungt nöturlegt atvik í byrjun lotunnar er Ágúst,prímus-mótorinn í vörninni hjá SR, fékk pökkinn í andlitið með þeim afleiðingum að hann þurfti beint á slysavarðsstofu með alvarlega áverka. Við þetta atvik sló óhug á SR-inga sem náðu varla að einbeita sér að leiknum það sem eftir var lotunnar. Í þriðju lotu mættu SR-ingar þó aftur með hugann við leikinn, spiluðu glimrandi vel og knúðu fram góðan og sanngjarnan sigur, 7 - 4. SR-ingar börðust vel í þessum leik, ef undan er skilinn önnur lota. Markvarsla Birgis var mjög góð, vörnin yfirleitt með á nótunum þar sem Zdenek og Kári, ásamt Ingvari, áttu mjög góðan leik. Hjá Birninum skapaði Sergei oft mikinn usla er hann hafði þrek til.

Mörk SR: Stefán 2, Zdenek 2, Gauti 1, Svavar 1 og  Úlfar 1

Mörk Bjarnarins (óstaðfest): Sergei 2, Hrólfur 2