Fréttir

Total items: 1194

SR færist nær í 3. flokki

Dags: 23.02.2005 12:29


Það má segja að 3. flokkur SR hafi stigið stórt skerf í áttina að Íslandsmeistaratitli í 3. flokki er þeir lögðu Björninn A í gærkvöldi. Leikurinn var allan tímann mjög jafn og spennandi en SR komst í 2-0, síðan 4-2 og svo í 6-3 er um 10 mín voru eftir af leiknum. Hér héldu leikmenn SR að sigurinn væri í höfn, slökuðu á og gerðust kærulausir. Ennfremur brá fyrir taugaveiklun hjá SR-ingum, svona nálægt því að vinna þriðja leikinn í röð gegn þessu liði. Björninn nýtti sér þetta vel, gekk á lagið og pressaði stíft síðustu mínúturnar, á meðan varnarleikur SR, sem hafði fram að þessu verið mjög traustur, varð fálmkenndari. Björninn bætti við tveimur mörkum en SR-ingar héldu þó haus og báru sigur úr bítum, 6-5. Bæði liðin sýndu góðan leik og hrósa ber strákunum í Birninum fyrir mikla seiglu á lokamínútunum og eins fyrir íþróttamannslega hegðun þegar ljóst var að leikurinn væri tapaður. Þeir voru til fyrirmyndar og mætti gjarnan fullorðið fólk á áhorfendabekkjunum taka þá til fyrirmyndar, í stað þess að verða sér til minnkunar með t.d. aðsúg að dómara leiksins, sem dæmdi annars ágætlega. Í flestum öðrum íþróttagreinum, sem njóta almenningshylli, heyrir þátttaka áhorfenda með þessum hætti liðinni tíð. Allir leikmenn SR geta verið stoltir yfir frammistöðu sinni en fáa óraði við því í haust að þetta lið yrði til stórræða. Til hamingju strákar! Mörk SR: Pétur 2, Þorsteinn 2, Egill 1 og Ragnar 1.