Dags: 18.02.2005 14:58

Á morgun, laugardag, munu þau Sandra Ólafsdóttir og Stefán Erlendsson vera með opna skautaæfingu í Egilshöll. Um er það ræða undirbúning fyrir Alþjóða vetrarólympíuleika fatlaðra Sandra og Stefán munu keppa fyrir Íslands hönd í listhlaupi á skautum. Þau hafa verið undir góðri leiðsögn Helgu Olsen undanfarin misseri með góðum árangri. Til þess að þau geti æft sig fyrir framan áhorfendur er öllum boðið að koma og horfa á þau á æfingu á laugardaginn kl.14:00.
Eru allir skautaunnnendur hvattir til að mæta á svæðið og gefa þessu afreksfólki góðan stuðning.