Fréttir

Total items: 1194

SR sigraði Björninn í 3. flokki

Dags: 16.02.2005 19:47


Í gærkvöldi léku SR-ingar aftur við Björninn A í 3. flokki, en síðasta viðureign liðanna lauk með 8-3 sigri SR. SR hafði kvöldið áður spilað erfiðan sigurleik við KSF og því mátti búast við að leikurinn yrði þeim erfiður gegn sterku liði Bjarnarins. Skemmst er frá því að segja að SR-ingar héldu uppteknum hætti og sigruðu örugglega, 5 - 1. Leikur SR-ingar var mjög góður, og sérstaklega varnarleikur liðsins sem var bæði fumlaus og áreynslulítill, þar sem allir leikmenn þekktu sínar stöður. Þannig fékk Björninn fá færi og þau sem duttu inn sá Aron markvörður um. Sóknarleikur liðsins var einnig mjög beittur og þeim tókst að skapa sér fjölmörg dauðafæri með einföldu, hnitmiðuðu spili. Þessi úrslit undirstrika rækilega að þessi flokkur hefur bætt sig verulega í vetur, breiddin mun meiri en búist var við, og ekki spillir fyrir að andinn í hópnum er mjög góður. Það er vonandi að þeir haldi sama dampi. Mörk SR: Egill 2, Andri 1, Ragnar 1 og Þorsteinn 1.