Dags: 13.02.2005 08:29
Það kom vel í ljós í gærkvöldi hið fornkveðna að "æfingin skapar meistarann!" er SR-ingar mættu Narfamönnum í Laugardalnum. Fyrir þennan leik hafði Narfa tekist að reita nokkur stig af SR en í gærkvöldi var einsýnt hvert stefndi; SR yfirspilaði hæga og svifaseina leikmenn Narfa frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu. Að venju tókst Narfanum að skora fyrsta markið en síðan var ekki aftur snúið. SR raðaði inn hverju markinu á fætur öðru, sum hver eftir fallegt spil eða einstaklingsframtak, og ekki stóð steinn yfir steini í varnarmúr Narfa. Leikurinn endaði svo 15 - 3 fyrir SR, og því vantaði SR aðeins eitt mark upp á að endurtaka skorið frá síðasta leik er þeir lögðu SA 16 - 3. SR spilaði mjög vel í þessum leik og allir leikmenn lögðu sig fram og virtust hafa gaman af þessu. Þeir voru augljóslega í miklu betra leikformi en Narfinn og eins er ljóst að ný kynslóð mun brátt taka við aðalhlutverkinu hjá SR, strákar sem eru aldir upp hjá félaginu og fá sífellt meiri reynslu, bæði í SR og eins með landsliðum Íslands. Með þeim eru svo reynsluboltar sem bakka þá upp. Leikurinn var annars prúðmannlega leikinn og góður dómari þessa leiks, Berglind Ólafsdóttir sem var aðaldómari í fyrsta sinn í Íslandsmóti karla, hafði góð tök á leiknum.
Mörk SR: Gauti 3, Guðmundur 2, Svavar 2, Ágúst 1, Hallur 1, Ingvar 1, Sandri 1, Zdenek 1, Þorsteinn 1 og Þórhallur 1.
Mörk Narfa: Heiðar 2, Sigurður 1
Í gærkvöldi var einnig annar leikur í Íslandsmótinu er Björninn mætti SA í Egilshöll. Svo virðist sem Björninn hafi ekki náð að sýna sitt besta en þeir máttu þola stórt tap, 5 - 14, gegn SA.