Fréttir

Total items: 1194

Jafnt hjá SR og KSF

Dags: 12.02.2005 11:07


Í gærkvöldi var fyrsti leikur danska liðsins KSF hér á landi er þeir mættu SR-ingum í 3. flokki. Strax varð ljóst að þetta yrði mjög jafn leikur, liðin skiptust á að sækja en ýmist góð vörn eða góð markvarsla sá um að mörkin yrði aldrei mörg. SR náði forystu er um 10 mín voru til leiksloka er Egill Þormóðsson skoraði laglegt mark í hraðaupphlaupi eftir stungusendingu frá Þorsteini Björnssyni. Eftir markið sótti KSF stíft en það var ekki fyrr en 3 mín fyrir leikslok er þeir náðu að jafna leikinn, 1 - 1. Bæði liðin léku af miklum krafti og markvarslan hjá Aron Stefánssyni og þeim danska var mjög góð. Danirnir áttu fleiri skot að marki en SR fékk líklega fleiri dauðafæri með mörgum hraðaupphlaupum. SR-ingar stóðu sig mjög vel í þessum leik. Sérstaklega var gaman að sjá ungu og léttu leikmennina, eins t.d. Pétur Maack sem átti mjög góðan leik, berjast af fullum krafti, algerlega ófeimnir við þyngri og stærri leikmenn í KSF liðinu. Heimsókn þessa liðs er hins vegar kærkomin tilbreyting fyrir SR og góð æfing fyrir ferð 3. flokks til Danmerkur um næstu mánaðarmót.