Dags: 11.02.2005 16:29
Á laugardagskvöldið er komið að SR að mæta aftur Hríseyingunum úr Narfa í Íslandsmóti karla, en þessi leikur fer fram í Laugardalnum og hefst kl. 19:00. Í fyrstu tveimur leikjunum gekk SR brösuglega með Narfana en í síðasta leik gekk þó allt upp og SR sigraði örugglega. Með hliðsjón af fyrri úrslitum er það fyrst og fremst stemningin og leikgleðin sem sker úr um það hver stendur uppi sem sigurvegari í þessum leik. Við hvetjum náttúrulega alla til að fjölmenna á leikinn.