Fréttir

Total items: 1194

Sigur hjá 3. flokki í Íslandsmótinu

Dags: 09.02.2005 14:14


Í gærkvöldi áttust við í 3.fl. í Íslandsmótinu SR og Björninn B, en þessi leikur fór fram í Egilshöll. Leikar fóru svo að SR vann stóran og auðveldan sigur á liði Bjarnarins, sem átti við ofurefli að etja í þessum leik. Leikurinn var annars prúðmannlega leikinn, þar sem leikmenn höfðu fyrst og fremst hugann við að spila íshokkí. Sérstaklega var eftirtektarvert að Bjarnarstrákarnir héldu haus allan tímann, börðust af krafti og létu ekki skapið hlaupa með sig í gönur, einsog svo oft vill brenna við þegar lið lendir í miklum mótbyr. SR-ingar sýndu í þessum leik að þeim hefur farið geysilega fram í þessum flokki í vetur, náðu oft upp glimrandi spili þegar á reyndi en mjög góð stemning ríkir innan hópsins. Næst leika þeir svo við danska liðið KSF frá Kaupmannahöfn sem hingað kemur um næstu helgi.