Fréttir

Total items: 1194

SR fór létt með Narfann 8 - 2

Dags: 23.01.2005 11:04


Í gærkvöldi mættu SR-ingar hinum reyndu köppum í Narfanum sem mættir voru í bæinn til að sækja stig í Laugardalinn eins og endra nær. Bæði liðin höfðu ekki leikið alvöruleik síðan fyrir jól og því eftivænting í lofti. SR hefur gengið illa með Narfa hingað til, gert eitt jafntefli og tapað svo einum leik, og því óhætt að segja að Narfinn hafi ekki kallað fram það besta í SR-ingum. Og víst er að leikurinn byrjaði skelfilega fyrir SR er Narfi skoraði eftir aðeins 8 sekúndur! Þessi slæma byrjun gaf þó ekki tóninn fyrir leikinn því Narfinn átti meira og minna í vök að verjast allan leikinn. Helgi Páll jafnaði leikinn og síðan komst SR yfir með marki frá Árna Bernhöft. Staðan 2-1 eftir fyrstu lotu. Í annarri lotu hélt einstefnan áfram og SR bætti hverju markinu við á fætur öðru og komst í 6-1 áður en önnur lota var úti. Í þriðju lotu jafnaðist leikurinn aðeins, var betur spilaður af beggja hálfu en sigur SR var þó aldrei í hættu, en leiknum lauk með sigri SR, 8-2. Með þessum sigri tókst SR að brjóta ísinn og losna við Narfa-grýluna á sannfærandi hátt, og það þrátt fyrir að eiga mjög kaflaskiptan leik. Ekki er ástæða til að telja tíunda frammistöðu einstakra leikmanna, en þó má segja að þriðja lína SR, með Árna, Hall og Þorstein í sókn, og Svavar og Svan í vörninni, hafi staðið sig einstaklega vel; pressað vel og spilað ágætlega saman. Sérstaklega var gaman að sjá Svavar standa sig vel í nýju hlutverki sem varnarmaður. Hinar tvær línurnar áttu góða spretti og þá sérstaklega Stefán Hrafnsson sem var ætíð hættulegur upp við markið.

Mörk SR: Stefán Hrafnsson 3, Steinar Páll Veigarsson 2, Árni Bernhöft 1, Helgi Páll Þórisson 1, Þorsteinn Björnsson 1.

Mörk Narfa: Helgi 1, Sigurður S Sigurðsson 1.

Dómari leiksins var Snorri Sigurðsson og dæmdi hann mjög vel; sá og heyrði allt sem þurfti. Honum til aðstoðar voru Berglind og Vilhelm.