Fréttir

Total items: 1194

Kraftur í yngri flokkunum

Dags: 21.01.2005 13:59


7flokkur.jpg

Enda þótt mikið gangi á hjá meistaraflokkum félaganna er áhuginn og krafturinn ekki síðri hjá yngri flokkunum. Um síðustu helgi voru t.d. nokkrir innbyrðis leikir milli SR og Bjarnarins og mætti þar margur pjakkurinn í nýjum galla eða á nýjum skautum eftir jólin. Og ekki var annað að sjá en áhuginn væri til staðar hjá þessum drengjum! Vorið verður annars mjög annasamt, leikir nánast um hverja helgi og mót yngri flokka hvert á eftir öðru með tilheyrandi skipulagi og góðri þátttöku foreldra og leikmanna. Því er mikilvægt fyrir alla foreldra að fylgjast vel með því hvað er á döfinni.