Dags: 18.01.2005 06:29

Það kom fáum á óvart að hið geysisterka lið Avangard Omsk frá Síberíu skyldi bera sigur úr bítum í Meistaradeild Evrópu í íshokkí sem lauk um helgina. Þeir höfðu unnið slóvesku og sænsku meistarana örugglega í riðlakeppninni og voru til alls líklegir. Í úrslitaleiknum mættu þeir finnsku meisturunum Karpat Oulu sem höfðu lagt þýsku og tékknesku meistarana. Að venjulegum leiktíma loknum var staðan 1 - 1, en í 4 gegn 4 framlengingu náði Avangard að knýja fram sigur með gullmarki frá engum öðrum en Jaromir Jagr, eftir sendingu frá besta leikmanni mótsins, Maxim Sushinsky. Leikurinn var mjög jafn og spennandi þar sem liðin skiptust á að sækja, og hin besta skemmtun fyrir áhorfendur sem fylltu höllina í Sánkti Pétursborg. Þetta var í fyrsta skipti sem Meistaradeild Evrópu fer fram og nú vitum við það að Avangard Omsk er besta félagslið Evrópu. Það væri óskandi að einhver sjónvarpsstöðin tæki sig nú til og sýndi frá þessari keppni á næsta ári. Þarna eru bestu lið Evrópu að keppa með marga af bestu leikmönnum veraldar innanborðs. Keppnin þótti mjög spennandi þar sem leikmenn sýndu sínar bestu hliðar. Það er óhætt að fullyrða að engin yrði svikinn af.
Stjörnulið keppninnar var valið eftirfarandi:
Markvörður: Norm Maracle, Avangard
Varnarmaður: Oleg Tverdovsky, Avangard.
Varnarmaður: Josef Boumedienne, Kärpät
Sóknarmaður: Maxim Sushinsky, Avangard
Sóknarmaður: Jussi Jokinen, Kärpät
Sóknarmaður: Andrei Kovalenko, Avangard.