Dags: 14.01.2005 19:06

Í gær hófst Meistaradeild Evrópu í íshokkí með tveimur leikjum er rússnesku meistararnir Avangard Omsk frá Síberíu mættu slóvesku meisturunum Dukla Trencin. Rússarnir áttu ekki í erfiðleikum með Slóvakana og sigruðu auðveldlega 6-1. Þýsku meistararnir Frankfurt Lions, með 9 kanadíska leikmenn innanborðs, mættu svo HC Zlin frá Tékklandi. HC Zlin vann leikinn í jöfnum og spennandi leik, 4-3. HC Zlin lék svo aftur í dag, og þá við finnsku meistarana, Karpat Oulu. Finnarnir unnu þann leik 4-1, þar sem markvörðurinn hélt þeim í leiknum með 97% markvörslu (30 skot) á meðan sá tékkneski varði aðeins 75%. eða 12 skot af 16. Að lokum mættu meistararnir HV71 Jönköping, Svíþjóðarmeistararnir, Dukla Trencin og sigruðu 4-1. Stöðuna í Meistaradeildinni, sem leikin er í Sánkti Pétursborg, má sjá hér.