Dags: 11.01.2005 15:24

Framundan er stór stund í evrópsku íshokkíi en dagana 13. til 16. janúar fer fram í fyrsta sinn Evrópukeppni félagsliða í íshokkí, en keppnin fer fram í Sankti Pétursborg í Rússlandi. Fyrirkomulagið er með þeim hætti að meistaralið frá sex bestu íshokkílöndum Evrópu, þ.e. frá Svíþjóð, Finnlandi, Tékklandi, Slóvakíu, Rússlandi og Þýskalandi hafa þátttökurétt og er þeim skipt í tvo riðla, A og B. Sigurvegarar riðlakeppninnar mætast svo í úrslitaleik 16. janúar og þá fæst úr því skorið hvert sé besta félagslið Evrópu. Hugmyndin er sú að í framtíðinni muni Evrópumeistararnir svo mæta Stanley-bikarmeisturunum ef hægt verður að ganga frá þeim formsatriðum og skipulagi (og ef NHL-deildin verður þá ennþá til!).
Í A-riðli leika: Hame Zlin frá Tékklandi, Karpat Oulu frá Finnlandi og Frankfurt Lions frá Þýskalandi. Í B-riðli leika: Dukla Trencin frá Slóvakíu, Avangard Omsk frá Rússlandi og HV 71 frá Svíþjóð.