Dags: 07.01.2005 13:48
Í kvöld mun landslið Íslands skipað leikmönnum 20 ára og yngri etja kappi við Pressulið sem sett er saman úr reynsluboltum víða að. Pressuliðið verður undir stjórn Sergei Zak á meðan þeir Owe Holmberg og Helgi Páll Þórisson stýra U20 liðinu (...til sigurs auðvitað). Fróðlegt verður að sjá hvernig strákarnir standast pressuna frá þessu gríðarlega sterkaa Pressuliði.
Leikurinn hefst kl. 21:25 í Skautahöllinni í Laugardal og eru allir áhugamenn um íshokkí hvattir til að koma og horfa á þennan stórleik.