Dags: 02.01.2005 11:08
Skömmu fyrir áramót fór fram kjör íþróttafréttamanna á Íþróttamanni ársins 2004, einsog venja er til. Þar varð hlutskarpastur Eiður Smári Guðjónssen einsog alþjóð veit. Fyrir þessa athöfn voru íþróttamenn árins hjá hverju sérsambandi ÍSÍ valinn. Hjá Íshokkísambandi Íslands voru þau Jónas Breki Magnússon og Anna Sonja Ágústsdóttir valin íshokkíleikmenn ársins. Jónas leikur með Gladsaxe í Danmörku og hefur staðið sig þar með prýði en Anna er leikmaður SA, ung að árum og efnileg. SR óskar Jónasi og Önnu innilega til hamingu með þennan glæsilega árangur.