Dags: 17.12.2004 13:31
SR mætir SA í Íslandsmóti karla, á laugardagskvöldið í Skautahöllinni í Laugardal. Þetta er síðasti leikurinn fyrir jól en næst eiga okkar menn ekki leik fyrr en 29. og 30. janúar á nýju ári. Því er um að gera að skella sér í höllina og sjá strákana okkar spila. SR er sem stendur í efsta sæti deildarinnar með 11 stig en SA er einungis tveimur stigum á eftir. Leikurinn getur orðið mjög skemmtilegur, enda allir komnir í jólaskap, en hann hefst kl. 19:00.