Fréttir

Total items: 1194

Skemmtilegt jólaball

Dags: 13.12.2004 18:00


IMGP1347.JPG

Í gærkvöldi var haldið hið árlega jólaball íshokídeildar SR. Mæting var að venju mjög góð, bæði hjá leikmönnum, foreldrum og systkinum. Skautað var kringum jólatréð, hlustað á jólalögin og veitingum gerð góð skil, en foreldrar sáu til þess að hlaðborðið í félagsaðstöðunni var drekkhlaðið af góðgæti. Leikmenn og systkini voru síðan leyst út með sælgæti. Við vonum svo að allir hafi haft gaman af.