Dags: 05.12.2004 20:11
Í gærkvöldi mættust SA og Narfi í seinni leik þessara liða um þessa helgi. Fyrri leikinn vann Narfi auðveldlega en nú fór svo að SA bar sigur úr býtum, 8-5. Í þetta sinn gátu SA menn teflt fram sterkara liði en í fyrri leiknum á meðan Narfi var án síns aðal markaskorara. Það munaði um minna. Næsti leikurinn í deildinni er á milli Bjarnarins og SR á þriðjudagskvöldið. SR hefur ekki leikið leik í heilan mánuð og því verður fróðlegt að sjá hvort leikmenn SR hafi tapað eitthvað einbeitingunni þennan mánuð. Alltént, leikurinn verður eflaust spennandi og skemmtilegur, enda bæði lið með mikið af ungum strákum.