Fréttir

Total items: 1194

Skemmtilegu íshokkímóti lokið

Dags: 22.11.2004 11:19


afhending_1.jpg

Um helgina fór fram hið árlega Iceland Invitational íshokkímót sem SR og Travel & Play ferðaskrifstofan standa að. Samtals tóku 6 lið þátt í mótinu, þrjú frá Íslandi og þrjú frá Kanada. Margir skemmtilegir leikir fóru fram og mörg glæsileg mörk skoruð.
Almennt vegnaði íslensku liðunum sæmilega en innan kanadísku liðanna voru allmargir sprækir leikmenn sem kunnu sitthvað fyrir sér. SR vann Toronto-Minnesota í undanúrslitum, 6-2, og Björninn tapaði naumlega fyrir New England-Quebec, 2-4, í skemmtilegum leik. Í úrslitaleiknum mættust því SR og Toronto-Minnesota í jöfnum og spennandi leik en svo fór svo að SR-ingar sigu hægt og rólega fram úr og unnu 3-0. Að launum fékk SR veglegan bikar sem gefinn var af Travel & Play. Á myndinni hér að ofan sést Steinar Páll Veigarsson, fyrirliði SR, taka á móti verðlaunum frá Birni Örvari, formanni SR.
Þar með lauk skemmtilegu móti. SR vill þakka öllum þátttökuliðum fyrir þeirra hlut í mótinu. Ennfremur vill SR þakka starfsmönnum Skautahallarinnar og forstöðumanni fyrir gott samstarf.


Á myndinni sést Björn Örvar, formaður íshokkídeildar Skautafélags Reykjavíkur, afhenda fyrirliða Toronto-Minnesota liðsins verðlaun fyrir annað sætið.


Hér eru liðin saman eftir góðan leik.