Fréttir

Total items: 1194

Alþjóðlegt íshokkímót í Laugardalnum

Dags: 19.11.2004 11:13


iceinv_poster_logo_path.jpg

Hið árlega Iceland Invitational mót í íshokkí verður núna um helgina í Skautahöllinni í Laugardal. Í fyrra tóku 18 erlend lið þátt í mótinu en að þessu sinni er mótið mun minna í sniðum, en þrjú kanadísk lið mæta til keppni ásamt þremur íslenskum liðum. SR sér um mótshaldið í skautahöllinni en ferðaskrifstofan Travel & Play sá um annað skipulag. Þau lið sem keppa eru:   Westmount/Montreal Toronto/Minnesota Travelers New England/Quebec Players SR - Junior Björninn - Junior SR/Björninn Old Boys   Fyrstu leikirnir eru á föstudagskvöldið (20:00-23:00), síðan verður leikið á laugardagsmorgni (10:15-12:30) og sunnudagsmorgni (10:15-12:30) en mótið endar svo á sunnudagskvöldið (18:30-23:00).