Fréttir

Total items: 1194

Brynjumótið um helgina

Dags: 12.11.2004 13:06


Í morgun kl. 11 lagði af stað til Akureyrar stór og fríður hópur yngri leikmanna úr SR ásamt mörgum foreldrum þeirra, en í fyrramálið hefst mótið af fullum krafti. Spilað verður fram eftir laugardegi og svo á sunnudagsmorgni. Síðan verður lagt af stað til Reykjavíkur fljótlega eftir hádegi. Aðalfararstjóri í ferðinni er Helgi Valsson en haægt er að ná í hann í síma 897-5313. En það eru fleiri SR-ingar að fara norður því 2.flokkurinn, undir stjórn Ingvars Þórs Jónssonar, spilar við SA í kvöld kl. 19:00. Þeir leggja hins vegar af stað suður strax eftir þann leik.