Fréttir

Total items: 1194

Góð þátttaka í foreldrafundum

Dags: 10.11.2004 09:29


Undanfarna daga hafa verið haldnir foreldrafundir fyrir alla yngri flokka félagsins. Óhætt er að segja að þátttaka foreldra hefur verið ótrúlega góð í þessum fundum en mikill meirihluti þeirra sá sér fært að mæta. Á þessa fundi hafa einnig mætt fulltrúar stjórnarinnar, liðstjóra flokkanna og þjálfari. Fundirnir hafa verið notaðir til að kynna starf félagsins, koma upplýsiningum til skila, en ekki síst til að ræða málefni flokkanna. Þátttaka foreldranna í þessum umræðum hefur verið mjög góð og uppbyggileg og margar góðar hugmyndir komið fram sem stjórnin mun nýta sér. Það er greinilegt að foreldrar fylgjast vel með börnum sínum í félagsstarfi þeirra og er annt um að vel takist til. Það hvílir því mikil ábyrgð á herðum okkar allra, en ef marka má þessa fundi, ættum við að geta gert félagið og hið félagslega umhverfi íþróttarinnar enn betra.