Fréttir

Total items: 1194

Úrskurður aganefndar

Dags: 09.11.2004 00:48


Á fundi aganefndar ÍHÍ s.l. fimmtudaginn var fjallað um atvik í leik SR og Narfa þann 30. október. Í úrskurði aganefndar segir: "Samkvæmt reglum ÍHÍ og IIHF hefur aganefnd heimild til að þyngja refsingu fyrir hvert það atvik sem að getið er í leikskýrslu og innifelur “Brottvísun úr leik” eða þyngri refsingu. Samkvæmt skýrslu dómara eru áverkar þeir sem leikmaður Narfa nr. 8 fékk bein afleiðing af broti leikmanns SR nr. 17. Það er álit dómara að um hafi verið að ræða ásetningsbrot þó að ekki sé hægt að ætla leikmanninum að hafa ætlað að meiða andstæðingin eins og raunin varð. Leikmaður SR Guðmundur Björgvinsson er hér með úrskurðaður í tveggja leikja bann í mfl. flokki."  Því er svo við að bæta að stjórn íshokkídeildar SR ákvað að umræddur leikmaður yrði settur í 10 daga æfingabann á vegum félagsins. Stjórnin lítur svo á að alvarleg brot, sérstaklega sem leitt geta til andlitsmeiðsla, verði að uppræta í íshokkíinu hér landi. Reynsla síðasta tímabils segir okkur hins vegar að naflaskoðun innan félaganna er nauðsynleg í þessum efnum.