Fréttir

Total items: 1194

Brotlending í fimmta leik

Dags: 31.10.2004 10:29


Eftir geysilega góða byrjun hjá SR í Íslandsmóti karla, þar sem liðið hafði unnið fyrstu fjóra leiki sína nokkuð auðveldlega, kom að því að liðið brotlenti. Og brotlendingin var hörð gegn Narfa úr Hrísey - við illan leik náðist jafntefli, 3 - 3, í leik sem hefði hæglega geta tapast. Jafnt var á með liðunum allan leikinn, Narfi gerði fyrsta markið í fyrstu lotu en Zdenek jafnaði skömmu síðar. Hann var síðan rekinn úr leiknum fyrir mótmæli og kjaftbrúk eftir að hafa fengið kylfu í andlitið sem dómarar sáu ekki. Síðan komust SR-ingar yfir með marki frá Stefáni Hrafnssyni en aftur jafnaði Narfi.  SR komst svo í 3 -2 með glæsilegu langskoti frá Ágústi Ásgrímssyni en aftur náði Narfi að jafna og þannig endaði leikurinn. Lítið spil var í leik SR-inga og ótrúlegt að þetta hafi verið sama liðið og hefur skemmt áhorfendum í haust með stórskemmtilegum leik hvað eftir annað. Enda þótt Narfi hafi veitt SR-ingum óvænta mótspyrnu var alveg óþarfi að falla í þá gryfju að leysa málin með einstaklingsframtaki um allan ís. Það getur verið í lagi ef viðkomandi leikmaður er yfirburðarmaður, einsog sjá má þegar Zdenek svífur um ísinn, en fyrir þessa "venjulegu" leikmenn er það spilið sem skiptir öllu máli. Hvað eftir annað mátti sjá reynda leikmenn SR spila sig í algerar ógöngur vegna þess að spilið sat ekki í fyrirrúmi. Sérstaklega var þetta áberandi með varnarmennina þar sem oft á tíðum einföldustu sendingarleiðirnar voru ekki valdar. Það var helst að yngsta lína reyndi að spila af einhverju viti. Og enn og aftur eru "power-play" SR-inga illa nýtt, oft lítið vald á pekkinum innan sóknarsvæðisins og skot reynd úr þröngum skotvinkli, leikmenn í hornum sjaldnast notaðir og hvað þá "skrifstofa Gretzkys". En það var hins vegar margt mjög gott í leik SR-inga, og þá sérstaklega var varnarleikurinn sterkur, með Jón Trausta markvörð sem besta leikmann SR - öryggið uppmálað allan leikinn. Það hjálpaði eflaust til að sóknarmenn Narfa eru kannski ekki þeir fljótustu en skipulagið var oftast gott. Lið Narfa verður betra og betra, ekkert lið getur fyrirfram bókað sigur gegn því, og óneitanlega eykur tilkoma þeirra spennugildi Íslandsmótsins því við verðum að hafa gaman af þessu. Þarna eru margir gamlir refir sem kunna sitthvað fyrir sér en í þessum leik var Gulli markvörður þeirra geysilega góður og yfirburðarmaður í liði þeirra. Ýmsar uppákomur af "gamla skólanum" sáust í leiknum. Einn Narfaleikmaður fékk útlikokun úr leiknum eftir áflog og annar SR-ingurinn einnig fyrir mjög háskalegt brot sem væntanlega verður tekið fyrir af aganefnd ÍHÍ. Dómgæslan í leiknum var annars ágæt og mikilvægt að leikmenn og áhorfendur í öllum liðum hætti að líta á dómara sem aðalatriði og örlagavalda í hverjum leik.