Fréttir

Total items: 1194

Góður sigur á SA

Dags: 24.10.2004 22:28


Í gærkvöldi tóku SR-ingar á móti SA í Íslandsmóti karla. Þessi lið höfðu áður mæst á Akureyri og þá höfðu SR-ingar betur. Nú var komið að því að endurtaka leikinn. SR byrjaði mjög vel og eftir fyrstu lotu var staðan 4-0 SR í vil. Þegar hér var komið við sögu virtist ekkert geta komið í veg fyrir öruggan sigur SR, liðið lék nokkuð vel og SA alls ekki líklegt til að komast inn í leikinn. En þá tóku SR-ingar á sig tvö klaufalega brottrekstra og fimm gegn þremur skoruðu norðanmenn auðveldlega og staðan því 4 - 2. Þessi staða var algerlega óþörf og það tók okkar menn nokkurn tíma að komast í gang aftur. En það hafðist, SR tók brátt aftur öll völd og sigldi örugglega fram úr með mörgum góðum mörkum. En til að halda við hefðinni gáfu þeir þó SA mark á silfurfati þegar SR var tveimur fleiri, rétt eins og fyrir hálfum mánuði í leiknum á Akureyri. Svo virðist sem SR fyllist kæruleysi í "power-play" og nýti sér það illa. Sérstaklega á þetta við um sterkustu línuna en þetta þarf að laga. SR náði þó að landa öruggum sigri, 10 - 5, og hafa því unnið fyrstu þrjá leiki sína á Íslandsmótinu. Glæsilegt það! Liðið leikur sem ein heild, ungu strákarnir eru að spjara sig og verða sífellt öruggari með hverjum leik. Ekki veikir það liðið að hafa Zdenek innanborðs því bæði er hann feikna góður leikmaður, sem beinlínis matar félaga sína á stoðsendingum, heldur gefur hann liðinu aukið sjálfstraust og sigurvilja.

Mörk SR: Gauti (3), Ingvar (2), Zdenec (1), Helgi Páll (1), Sindri Már (1), Þorsteinn (1) og Stefán (1).

Það skyggði óneitanlega á leikinn viðbrögð leikmanna SA þegar einn þeirra leikmanna fékk brottrekstur og hafði í kjölfarið litla stjórn á hegðun sinni. Í stað þess að koma dómurum til aðstoðar og aðstoða við að róa leikmanninn, því það gekk vægast sagt illa, stóðu þeir aðgerðarlausir hjá einsog þeim kæmi þetta ekki við! Uppákomur sem þessar eiga ekki heima í þessum leikjum og fyrirliðar og þjálfarar þurfa að leggja línurnar í sínum hópi. Þrátt fyrir glæsilega byrjun SR á Íslandsmótinu voru fáir áhorfendur í höllinni. Þetta er áhyggjuefni því ef takast á að byggja frekar upp íshokkí hér á landi skiptir sköpum að áhorfendur sæki þessa fáu leiki sem í boði eru. SR-ingar eiga tvo heimaleiki í vikunni, gegn Birninum á miðvikudagskvöldið, og gegn Narfa á laugardagskvöldið. Við væntum þess að fleiri sjái sér fært að mæta þá.

Strax að þessum leik loknum mættust 3. flokkur þessara liða. SA mátti þola stórt tap gegn SR er liðin mættust á Akureyri fyrir hálfum mánuði og svo fór að sagan endurtók sig því SR vann leikinn 16-1. Þessi úrslit gefa til kynna meiri yfirburði en reyndin var því SA fór oft illa að ráði sínu í fjölmörgum dauðafærum sem Aron markvörður SR sá um. Auk þess var markvarsla þeirra í þessum leik köflótt og þeir áttu í erfiðleikum með að stoppa Þorstein í sókninni. Ekki bætti úr skák að þeir léku á tæplega tveimur línum sem þreyttust er á leikinn leið. En þeir geta gert miklu betur og víst er að þeir munu mæta tvíefldir til leiks er þeir mæta SR-ingum næst.

Mörk SR (með fyrirvara). Þorsteinn (7), Ragnar (2), Gunnlaugur (2), Pétur (1), Sindri (1), Jón Þröstur (1), Egill (1) og Tómas Tjörvi (1).