Fréttir

Total items: 1194

Leikjadagskrá vetrarins liggur fyrir

Dags: 11.10.2004 19:41


Þá er orðið nokkurn veginn ljóst hvernig leikja- og mótadagskrá vetrarins muni líta út. Mikil vinna fer í að setja saman slíka dagskrá þar sem mörg sjónarmið þarf að hafa í huga og skautahallirnar einungis þrjár. Þessi dagskrá er unnin af Leikja- og mótanefnd ÍHÍ en öll félögin eiga fulltrúa í þeirri nefnd. Í viðburðarskrá á heimasíðu okkar má finna leiki og mót vetrarins. Einstaka leikir geta þó færst til eftir aðstæðum.