Fréttir

Total items: 1194

Keppnisferð til Akureyrar

Dags: 07.10.2004 21:56


Um helgina leika SR-ingar við SA í Íslandsmóti karla og ennfremur í Íslandsmóti 3. flokks. Þessir leikir fara fram á laugardagskvöldið í Skautahöllinni á Akureyri. SA hefur leikið tvo leiki í Íslandsmóti karla, báða við Narfa, en þeir unnu fyrri leikinn en gerðu síðan jafntefli í þeim seinni. SR-ingar hafa leikið einn leik en þeir unnu Björninn í fyrsta leik sínum. Bæði þessi lið hafa misst marga reynda leikmenn frá því á síðasta tímabili, bæði til útlanda og eins í Narfa, svo nú kemur í ljós hvort liðið hefur meiri breidd og meiri metnað. Það má því búast við hörkuleik enda SA menn óvanir því að tapa, hvað þá á heimavelli, á meðan SR-ingar eru fullir sjálfstrausts eftir góða frammistöðu í fyrsta leik sínum.