Fréttir

Total items: 1194

SR mætir Birninum

Dags: 28.09.2004 07:56


Í kvöld kl 19:30 mætir SR Birninum í Íslandsmóti karla en þessi leikur fer fram í Egilshöllinni. Þetta er fyrsti leikur SR í Íslandsmótinu en Björninn lék gegn Narfa um síðustu helgi. Lið SR er fyrst og fremst skipað ungum leikmönnum en þó með nokkra reynslubolta innan um, þar sem SR-ingar misstu marga reynda leikmenn fyrir þetta tímabil og þ.á.m. báða markmenn sína. Það verður því fróðlegt að sjá hvernig liðinu vegna í kvöld undir stjórn hins nýja þjálfara, Stanisalvs Berger.