Dags: 12.09.2004 11:12
Þá er það orðið ljóst að Kanada og Finnland munu mætast í úrslitaleik Heimsbikarmótsins í íhokkí sem fram fer þriðjudaginn 14. september í Toronto. Finnar höfðu áður tryggt sér frækilegan sigur á Bandaríkjamönnum, 2-1, þar sem varnir liðanna voru í aðalhlutverki. Í þeim leik voru margir frægir kappar í liði Bandaríkjanna að ljúka sínum ferli með landsliðinu einsog Chris Chelios, Brian Leetch og hinn skotfasti Brett Hull. Hjá Finnum var Saku Koivu að vanda mjög sterkur og sýndi oft á tíðum snilldartakta, og sigurmark hans var glæsilegt. Einkenni Finna var hins vegar mjög fastur, líkamlegur leikur þar sem vöðvabúntið Ville Nieminen tæklaði allt sem hreyfðist. Í gærkvöldi mættust svo Tékkar og Kanadamenn, sem fyrirfram mátti svo sem telja líklegustu liðin til að ná alla leið. Kanada vann leikinn 4-3 í framlengingu í stórkostlegum leik þar sem varamarkvörður þeirra, Roberto Luongo, fór á kostum. Tékkar léku þennan leik mjög vel og á köflum yfirspiluðu Kanada, sérstaklega í 3. leikhluta og í framlengingunni. Tékkar áttu t.d. 40 skot að marki en Kanada 24 með enn og aftur JAromir Jagr í aðalhlutverki. Þessir sóknaryfirburðir dugðu þó ekki og það var Vincent Lecavalier sem tryggði Kanadamönnum sæti í úrslitaleiknum með marki í framlengingu. Það verður að segjast að Kanada er nú að nálgast þá stöðu innan íshokkís sem þá hefur alltaf dreymt um og talið þeirra, að vera óumdeilanlega bestir í heiminum. Nú hafa þeir unnið Ólympíutitilinn 2002, Heimsmeistarar 2003 og 2004, og kannski bæta þeir enn einni skrautfjöðrinni við á þriðjudagskvöldið. Það verður hins vegar að segjast að svolítil heppni hefur oft á tíðum einkennt þessa titla, oft mikið einstaklingsframtak, oft ólíklegra leikmanna, klárað leikina á síðustu stundu. Tékkar hljóta að vera mjög vonsviknir enda greinilega með geysilega öflugt lið, jafnvel það sterkasta í keppninni. Ef litið er á einstaka leikmenn þeirr má fullyrða að hvergi finnist eins margir góðir einstaklingar í einu liði og hjá Tékkum. En þaðgekk ekki upp hjá þeim að þessu sinni. Það verður því Finnland og Kanada sem mætast í úrslitaleiknum. Kanada fer í þann leik fullir sigurvissu en ástæða er til að vanmeta ekki seiglu Finnanna sem nú virðast hafa endurheimt sjálfstraustið sem Svíar hafa svo barið niður í leikjum þeirra. Þetta er í fyrsta sinn er Finnar komast í úrslitaleik Heimsbikarkeppninnar, og það tókst þeim þrátt fyrir að vera með frekar litla breidd og með lið sem ekki hefur sýnt þjálfara sínum fullt traust.