Dags: 04.09.2004 19:31

Það stefnir allt í hörkuspennandi úrslit í Heimsbikarkeppninni í íshokkí. Nú þegar hafa Svíar, Finnar, Rússar og Kanadamenn fullt hús stiga eftir tvo leiki. Tékkar hafa unnu Þýskaland en töpuðu fyrir bæði Finnum og Svíum. Bandaríkjamenn unnu Slóvaka, sem tapað hafa báðum leikjum sínum, en töpuðu fyrir Kanadamönnum 2-1. Síðan léku þeir við Rússa í spennandi leik þar sem Rússar léku á alls oddi og unnu 3-1. Fyrir þessa keppni var ekki búist við miklu af Rússum þar sem mikil ringlureið var í kringum liðið og margir lykilmenn í fýlu, einsog aðalmarkvörður þeirra, Nikolai Khabibulin. Þeir tefla fram algerlega óþekktum markvörðum sem virtist ekki koma að sök. Rússar eiga mjög mikið af góðum leikmönnum og nægir þar að nefna Ilya Kovalchuk, Pavel Datsyuk, Sergei Samsonov og Alexei Kovalev. Rússar mæta svo Kanadamönnum á laugardagskvöldið og þar verður um hreinan úrslitaleik að ræða í þessum riðli.