Dags: 02.09.2004 19:45
Í gær hófust æfingar formlega hjá SR. Dagurinn hófst með Skautaskólanum og 6. og 7. flokki kl. 16:00 en um kvöldið voru æfingar hjá 5. flokki, 3.flokki og 2.flokki og meistaraflokki. Ingvar Þór Jónsson stýrði æfingum 5. flokks en hann verður þjálfari þeirra í vetur. Eins leysti hann Kristján Óskarsson af í 6. og 7. flokki, en Kristján er enn ekki skautafær sökum meiðsla. Helgi Páll sá svo um Skautaskólann en góð mæting var strax á fyrsta degi þar. Síðan um kvöldið var svo Stanislav með sínar fyrstu æfingu er hann stjórnaði 3.flokki. Svo stýrði hann æfingum 2.flokks og meistaraflokks. Verður fróðlegt að fylgjast með þjálfun hans næstu vikurnar og gaman að bera saman hans aðferðir við aðferðir fyrirrennara hans, Peters Bolin.