Fréttir

Total items: 1194

Heimsbikarkeppnin hafin

Dags: 31.08.2004 20:37


holmstrom_action_285x194.jpg

Í gærkvöldi fóru fram fyrstu leikirnir í Heimsbikarkeppninni í íshokkí en þetta mót er haldið á fjögurra ára fresti með þátttöku 8 sterkustu þjóðanna. Að venju senda þjóðirnar, þ.e. Finnland, Svíþjóð, Tékkland, Rússland, Slóvakía, Kanada, Bandaríkin og svo Þýskaland, sína sterkustu leikmenn, enda NHL deildin ekki byrjuð. Fyrst tóku Finnar á móti Tékkum í leik sem átti að vera spennandi. Þessi leikur fór fram í Helsinki og heimamenn gjörsamlega yfirspiluðu stjörnumprýtt lið Tékka og sigruðu 4–0. Tékka á í hinu mesta basli með mikla pressu Finnana og greinilega ekki vel fyrir kallaðir eftir skyndilegt brottfall þjálfarans, Ivan Hlinka. Svíar tóku síðan á móti Þjóðverjum og sigruðu auðveldlega, 5-2. Næstu daga verður stíft leikið en keppnin endar svo með hreinum úrslitaleik sem fram fer í Kanada. Nánar um það seinna.