Dags: 19.08.2004 21:34

SR-ingurinn og fyrrverandi þjálfari, Guðmundur Ragnar Björgvinsson, sem tók sig upp og flutti til Svíþjóðar er strax farinn að kveða að sér. Hann hefur undanfarna daga dvalið í æfingabúðum hjá Helsingborg Redskins til reynslu. Um hann er fjallað í Helsingborg Dagblad þar sem m.a. kemur fram að á laugardaginn fái hann að spreyta sig með liðinu í “mini-túrneringu” Junior20 liða. M.a. er viðtal við þjálfara liðsins, Mathias Frelin, sem segir að Gummi sé “góður skautari og hann verður örugglega mjög duglegur leikmaður”. Síðan er talað um það að Peter Bolin, fyrrum þjálfari SR, hafi komið Gumma í samband við þá Redskins menn.