Fréttir

Total items: 1194

Þjálfari Tékka deyr í bílslysi

Dags: 18.08.2004 17:40


Hlinka.jpg

Ivan Hlinka þjálfari tékkneska íshokkílandsliðsins og einn af bestu leikmönnum í sögu gömlu Tékkóslóvakíu, lést í bílslysi s.l. mánudag. Í athöfn á heimsmeistarmótinu í Prag á þessu ári var hann útnefndur sem besti leikmaður Tékka frá upphafi. Hann var nýtekinn við tékkneska landsliðinu aftur, en undir hans stjórn urðu Tékkar Ólympíumeistarar 1998 og Heimsmeistarar 1999.  Hann varð fyrsti evrópski þjálfarinn til að þjálfa í NHL er hann þjálfaði Pittsburgh Penguins 2000-2001. Hann spilaði með tékkneska landsliðinu 256 leiki, og m.a. þegar þeir urðu Heimsmeistarar 1972, ’76 og ’77. Hann hlaut einnig fengu bronsverðlaun með tékkneska landsliðinu á Ólympíuleikunum 1972 og silfrið 1976. Hann byrjaði að spila með Vancouver Canucks 1981 í NHL og spilaði með þeim 137 leiki. Árið 2002 var hann tekinn inn í IIHF "Hall of fame", Frægðarhöllina.