Dags: 09.08.2004 20:25
Það skein eftirvænting úr hverju andliti er SR-ingarnir tíndust einn af öðrum í Skautahöllina í Laugardalnum til að taka þátt í æfingabúðum SR. Yngri hópurinn mætti á ísinn 18:15 en sá eldri 20:30. Það var ekki að sjá að leikmennirnir hefðu gleymt miklu, góður kraftur og leikmenn í góðu formi miðað við aðstæður. Mjög góð mæting er í æfingabúðirnar, sérstaklega í eldri hópnum. Æfingabúðirnar verða endurteknar í næstu viku og enn er hægt að skrá sig. Við hvetjum SR-inga til að ganga frá því sem fyrst (kmaack@simnet.is eða Helgi 861-4939). Enn er ekki vitað hvenær æfingar byrja í haust en úr því ætti að fást skorið mjög fljótlega.