Dags: 06.08.2004 00:40
Þann 16. ágúst n.k. hefst í Egilshöllinni skautanámskeið fyrir íshokkíleikmenn og listskautara úr öllum félögum er Skautaskóli Reykjavíkur býður upp á. Skólinn kemur til með að vera í 2 vikur en þeir félagar Sergei Zak (íshokkí) og Igor Galtsov (listskauta), báðir úr Birninum, stýra þessum skóla. Fyrri vikan er heilsdagsnámskeið en sú seinni 3 klukkustundir, en verð fyrir tvær vikur er 23.000. Nánari upplýsingar má nálgast á skautaskoli.com.