Fréttir

Total items: 1194

Skráning í æfingabúðir SR; stundatafla tilbúin

Dags: 08.08.2004 11:24


Við viljum minna á að á mánudaginn n.k. hefjast æfingabúðir íshokkídeildar SR en þær eru fyrst og fremst fyrir alla þá leikmenn SR sem vilja koma sér í gott leikform áður en tímabilið hefst af alvöru í lok ágúst. Lögð er áhersla á kylfu- og skottækni (skothraði mældur) en m.a. verður stuðst við finnskar æfingaáætlanir. Skipt verður í tvo hópa, eldri og yngri. Hver ísæfing er 60 mín. fyrir yngri hópa og 75 mín. fyrir eldri hópa og hvert námskeið tekur 5 daga, þ.e. frá mánudagskveldi til föstudagskvölds. Fyrra námskeiðið er vikuna 9. til 13. ágúst, en það seinna 16. til 20. ágúst. Yngri hópar eru á ís frá 18:15–19:15 en eldri hópar frá 19:30–20:45. Auk þess verður boðið upp á fjölbreytilegar þrekæfingar fyrir eldri hópa að loknum ísæfingum. Verð fyrir vikunámskeið er 4500 kr. fyrir yngri hópa en 5000 kr. fyrir eldri hópa. Mjög góð viðbrögð hafa fengist og margir litið á þessar æfingabúðir sem kærkomið tækifæri á að koma sér í leikæfingu fyrir veturinn. Enn er þó hægt að skrá sig í æfingabúðirnar fyrir vikuna 16. til 20. ágúst en fyrri vikan er nánast full. Skráning er í netfangið kmaack@simnet.is eða í síma 861-4939 (Helgi).

 

Búið er að setja á heimasíðuna stundaskrána fyrir æfingabúðirnar. Skv. henni hefst mánudagurinn með upphitun fyrir yngri flokkinn (´92 og yngri) frá kl.17:45 – 18:00. Ísæfing yngri flokks er síðan frá kl.18:15 – 19:15 og síðan léttar æfingar frá kl.19:30 – 20:00. Eldri hópurinn (´91 og eldri) byrjar í upphitun kl.19:00 – 19:15 en ísæfingin er frá kl.19:30 – 20:45. Eftir hana, eða kl. kl.21:00, hefst svo þrekæfing eldri flokks.

 

Námskeiðsgjöld skal greiða á staðnum við innritun á mánudagskvöldið 9. ágúst. Greiða skal með peningum eða ávísun. Ætlast er til þess að þátttakendur mæti stundvíslega. Allar nánari upplýsingar gefur Helgi Páll í síma 861-4939.

 

Sjáumst hress !!

 

Helgi og Ingvar