Fréttir

Total items: 1194

Æfingabúðir hjá SR hefjast 9. ágúst!

Dags: 23.07.2004 16:50


Mánudaginn 9. ágúst byrja í Skautahöllinni í Laugardal námskeið í íshokkí er íshokkídeild SR stendur fyrir. Þessi námskeið eru hugsuð fyrst og fremst sem æfingabúðir fyrir alla þá leikmenn sem vilja koma sér í gott form áður en tímabilið hefst af alvöru í lok ágúst. Boðið verður upp á tvö námskeið fyrir alla aldursflokka, það fyrra vikuna 9. til 13. ágúst, en það seinna 16. til 20. ágúst. Aðaláherslan verður á tækniæfingar á ís en leikmönnum verður skipt í hópa eftir getustigi. Nánari útfærsla á þessum námskeiðum verður birt á heimasíðunni fljótlega eftir helgi ásamt frekari upplýsingum um skráningu.