Dags: 15.07.2004 22:18
Danir státa ekki af langri sögu í íshokkí og enn í dag eru það ekki margir sem æfa íshokkí í Danmörku, eða innan við 5000. Líkt og við Íslendingar hafa þeir þurft að byrja á botninum og fikra sig svo áfram, minnugir þess er þeir töpuðu árið 1949 fyrir Kanada 47 – 0 í Heimsmeistarakeppninni. Í dag er danska Elíte deildin t.d. orðin nokkuð sterk og þar hafa margir góðir A-Evrópubúar leikið og aukið þannig kröfurnar hjá heimamönnum. Danir hafa ennfremur unnið gott unglingastarf undanfarin ár, rétt einsog í t.d. knattspyrnu, og árangurinn hefur ekki látið á sér standa: Árið 2002 var Daninn Frans Nielsen valinn í nýliðavali NHL og í ár voru það tveir Danir (fæddir 1986) sem valdir voru; Peter Regin Jensen úr Herning IK, valinn af Ottawa Senator í 3. umferð, og Jannik Hansen frá Rödovre, valinn í 9. umferð af Vancouver Canucks. Þeir Peter og Jannik voru máttarstólparnir í sókn Dana sem náðu óvænt 8. sæti í U18 heimsmeistaramótinu í efstu deild. Danir unnu þar Hvít-Rússa og Norðmenn en töpuðu með einu marki gegn Svíþjóð og Kanada. Glæsilegur árangur þar. Hvort þessir leikmenn munu einhvern tímann eiga eftir að leika í NHL verður tíminn að leiða í ljós en engum dylst að þetta eru efnilegir leikmenn.