Fréttir

Total items: 1194

Uppskeruhátíðin í NHL

Dags: 13.07.2004 00:46


awards04_stlouis_artross_hart.jpg

Eftir að Tampa Bay Lightning höfðu unnið Stanley bikarinn eftir frækilegan sigur á Calgary Flames var komið að því að veita einstaklingsverðlaun fyrir nýliðið tímabil. Það er skemmst frá því að segja að Quebec búinn í meistaraliðinu, Martin St. Louis, hreinlega sópaði til sín verðlaununum. Hann hlaut hinn eftirsótta "Hart bikar", sem mikilvægasti (MVP) leikmaðurinn í NHL, "Lester B Pearson bikarinn" sem leikmaður ársins valinn af öðrum leikmönnum og svo "Art Ross bikarinn" fyrir flest stig (94). Þetta er í fyrsta skipti síðan 1987 að sami leikmaðurinn vinnur Stanley-, Hart- og Art Ross-bikarinn en þá var það Wayne Gretzky sjálfur. Þetta er glæsilegur árangur hjá lítt þekktum leikmanni sem ávallt var talinn of lítill til að ná langt í NHL! Síðan var það Scott Niedermayer hjá New Jersey Devils sem vann "Norris bikarinn" sem besti varnarmaðurinn og Martin Brodeur, líka hjá Devils, vann annað árið í röð "Vezina bikarinn" sem besti markmaðurinn.