Fréttir

Total items: 1194

Heimsbikarkeppnin nálgast

Dags: 10.07.2004 13:14


Í lok ágúst fer fram Heimsbikarmótið í íshokkí en 8 bestu íshokkíþjóðirnar taka þátt í þessu móti. Nú hafa liðin verið tilkynnt og má nálgast þau hér. Þetta mót er með þeim hætti að liðunum er skipt í tvo riðla og fer annar fram í Evrópu en hinn í N-Ameríku. Undanúrslitaleikirnir fara fram í Toronto í Kanada og í St. Lois í Bandaríkjunum en úrslitaleikurinn verður svo háður í Air Canada Center í Toronto 14. september. Þessi keppni er því eins konar “auka”- heimsmeistarakeppni en aðalkeppnin fór fram í Finnlandi í vor og lauk, einsog kunnugt er, með sigri Kanadamanna á Svíum í úrslitaleiknum. Munurinn á þessum mótum er þó kannski helst sá að nú geta allar þjóðirnar mætt með alla þá NHL-leikmenn sem þau kjósa enda kemur í ljós þegar landsliðin eru skoðuð að allir helstu kapparnir eru mættir til leiks einsog Joe Sakic og Martin Brodeur (Kanada), Jaromir Jagr og Milan Hedjuk (Tékkland), Miikka Kiprusoff og Saku Koivu (Finnland), Ilya Kowalchuk og Alexei Yashin (Rússland), Peter Bondra og Miroslav Satan (Slóvakia), Keith Tkachuk og Mike Modano (BNA), Olaf Kolzig og Marco Sturm (Þýskaland), og Peter Forsberg og Mats Sundin (Svíþjóð). Af liðskipan þessara landsliða er ljóst að öllu hefur verið tjaldað til og ljóst að þetta mun verða mjög spennandi keppni. Nánar um það seinna.  

Riðlaskiptingin er sem hér segir:

Evrópuriðill: Tékkland, Finnland, Svíþjóð og Þýskaland  

N-Ameríkuriðill:Kanada, Bandaríkin, Rússland og Slóvakia.