Fréttir

Total items: 1194

Nýliðavalið í NHL

Dags: 26.06.2004 11:36


Í dag fer fram nýliðavalið í NHL en þá gefst NHL liðum tækifæri á að velja til sín efnilega, unga leikmenn frá öðrum, smærri liðum í Evrópu og N-Ameríku. Það er alltaf töluverð spenna í kringum þennan dag, mikið um bollaleggingar og mörg lið nota tækifærið til að versla með rétt sinn bak við luktar dyr. Athöfninni sjálfri er ávallt lýst beint í sjónvarpi í N-Ameríku. Í ár er talið víst að rússnesku leikmennirnir Alexander Ovchkin (Dynamo Moskva), 18 ára, og Evgeni Malkin (Metallurg Magnitogorsk), 17 ára, verði valdir númer eitt og tvö. Washington Capitals eiga fyrsta valið en Pittsburg Penguins annað valið. Við sjáum hvað setur.