Dags: 19.06.2004 09:56
Dagana 25. - 26. júní fer fram götuhokkímót (streethokkí) í Egilshöllinni en mótið skipuleggur Björninn. Liðum er boðið að senda þátttöku á mótið en hægt er að skrá sig hjá sergei@skautaskauli.com eða í síma 847-5366. Keppt er í fjórum aldursflokkum en nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Bjarnarins. Við hvetjum svo alla þá sem stundað hafa götuhokkí af krafti í vor og sumar að senda lið í mótið en þátttökugjald er 700 kr á leikmann.