Fréttir

Total items: 1194

Tampa Bay Stanley meistarar

Dags: 08.06.2004 09:20


lightning_cup_group060704.jpg

Þá er lokið úrslitakeppninni um Stanley bikarinn þetta tímabilið en Tampa Bay bar sigurorð af Calgary Flames í gærkvöldi, 2-1, og þá samanlagt 4-3. Bæði mörk Tampa Bay skoraði Ruslan Fedotenko. Þetta er í fyrsta sinn að Tampa Bay vinnur Stanley bikarinn en löngum hefur þetta lið þurft að verma botninn í NHL deildinni, sem reyndar hefur gefið þeim tækifæri á að velja snemma efnilega leikmenn í nýliðavalinu. En nú uppskera þeir laun erfiðis en þeirra sigur má kallast sanngjarn. Liðið vann Austurdeildina örugglega og hefur spilað mjög vel í vetur. Fyrir Calgary Flames eru þetta sár vonbrigði þar sem enginn bjóst við svo miklu af þeim og að hafa komist nánast alla leið, en ekki alveg, er erfitt að kyngja. En nú er íshokkíinu formlega lokið og þessir leikmenn, allavega, hvíldinni fegnir.