Fréttir

Total items: 1194

Spennan magnast í úrslitakeppni NHL

Dags: 01.06.2004 23:29


khabibulin_sydor053104.jpg

Það fór eins og svo margir höfðu spáð að úrslitarimman milli Calgary og Tampa Bay yrði bæði löng og ströng. Nú er komið sumar og enn eru þeir að spila íshokkí! Tampa Bay náðu að jafna stöðuna með 1-0 sigri í Calgary en bæði lið hafa nú unnið tvo leiki. Þetta var mikilvægur sigur fyrir Tampa Bay, sérstaklega þar sem aðalmarkaskorari þeirra í úrslitakeppninni, Ruslan Fedotenko (10 mörk) var meiddur sem og varnarmaðurinn sterki Pavel Kubina. En Tampa Bay gátu nú, eins og svo oft áður, reitt sig á hinn rússneska markmann sinn Nikolai Khabibulin sem hélt markinu hreinu enn einn leikinn, eða í fimmta sinn í úrslitakeppninni. Hinn finnski markvörður Calgary, Miikka Kiprusoff, sem slegið hefur í gegn í þessari úrslitakeppni, hefur reyndar líka haldið hreinu fimm sinnum í úrslitakeppninni. Frammistaða þessara markvarða undirstrikar hin gömlu sannindi um úrslitakeppni NHL að ekkert lið nær svona langt í þessari keppni nema að til komi snilldarmarkvarsla í kannski 4 leikjum af hverjum 5. Þannig hafa markmenn einsog Martin Brodeur (New Jersey Devils), Patrick Roy (Colorado Avelance) og Dominik Hasek (Detroit Redwings) fært sínum liðum nánast Stanley bikarinn á silfurfati þegar á þurfti að halda. Í ár er það því spurninginn, hvor vinnur einvígið, Khabibulin eða Kiprosoff? Nánar má lesa um leikinn hér.