Dags: 28.05.2004 17:20

Enda þótt flestir íshokkí séu nú komnir í sumarfrí heldur baráttan um Stanley bikarinn áfram í NHL. Calgary Flames og Tampa Bay Lightning berjast þar um titilinn og eftir tvo fyrstu leikina er staðan 1-1. Bæði liðin hafa unnið 4-1 sigur þannig að allt stefnir í harða baráttu og jafnvel sjö leikja rimmu. Í fyrsta leiknum fór Jarome Iginla hjá Calgary á kostum og skoraði m.a. eftirminnilegt mark í hraðaupphlaupi, einum færri. Í öðrum leiknum var svo komið að Vincent Lecavalier, öðrum upprennandi Kanadamanni, að ganga frá Calgary en hann átti stjörnuleik er Tampa vann Calgary 4-1. Samkvæmt þessu er ljóst að Kanadamenn eru ekki á flæðiskeri staddir með framtíðarleikmenn.