Dags: 23.05.2004 10:51

Úrslitarimman um Stanley bikarinn 2004 er fyrir margra hluta sakir söguleg. Ekki aðeins tókst "smáliðinu" Calgary Flames að koma sér í úrslitaleikinn heldur fylgdi Tampa Bay Lightning þeim í kjölfarið. Tampa Bay hefur aldrei áður í 12 ára sögu þess komist þetta langt, yfirleitt verið liðið sem hægt var að gera grín að! En nú eru þeir komnir og til þess þurftu þeir að vinna Philadelphia Flyers í undanúrslitum en þeirri rimmu lauk í gærkvöldi, 4-3. Í þeim leik skoruðu Ruslan Fedotenko og Frederik Modin mörk Tampa Bay og Nikolai Khabibulin varði 22 skot gegn hinu reynslumikla liði Flyers með alla sínar "gömlu" stjörnur. Árangur Tampa Bay þarf ekki að koma á óvart því þetta lið hefur í mörg ár frá stofnun þess fengið tækifæri á að velja fyrst eða snemma í nýliðavali NHL. Með nýliðavalinu fá slök NHL lið tækifæri til að velja efnilegustu ungu leikmennina á undan sterku liðunum. Ef útsendarar liðanna eru klókir að koma auga á efnilega leikmenn geta slöku liðin safnað upp heilli herdeild af ungum og efnilegum leikmönnum. Tampa Bay hefur staðið sig vel í þessu vali og nægir þar að nefna kanadísku stjörnuna í liði þeirra, Vincent Lecavalier. Tampa Bay hefur einnig staðið sig vel í að fá til sín efnilega leikmenn sem önnur lið hafa kannski misst þolinmæðina með. Frederik Modin og Martin St. Louis, þeirra helstu markaskorarar, eru góð dæmi um það.