Dags: 20.05.2004 11:23

Calgary Flames munu leika til úrslita um Stanley Cup bikarinn í ár, í fyrsta sinn í 15 ár. Þetta smálið í NHL hefur heldur betur slegið í gegn og í gærkvöldi urðu þeir Vesturstrandarmeistarar er þeir lögðu San Jose Skarks, samanlagt 4-2. Þetta þýðir að þeir mæta í úrslitum annað hvort Tampa Bay Lightning eða Philadelphia Flyers, úr Austurstrandariðli, en þar er staðan 3-2 Tampa í vil. Árangur Calgary er eftirtektarverður því þeir þurftu m.a. að leggja Detroit Redwings að velli sem hlutu flest stig í deildakeppninni í vetur. Jarome Iginla, Martin Gelinas og finnski markvörðurinn Miikka Kiprusoff áttu stóran hlut að máli í þessu einvígi og greinilegt að Iginla er að skapa sér sess sem ein albesti kanadíski leikmaðurinn. Frammistaða Gelinas er ótrúleg þar sem þessi leikmaður hefur hvað eftir annað verið afskirfaður. Úrslitin segja okkur að ekki er nóg að fylla liðin af rándýrum stórstjörnum, meira þarf til. Þetta er í fyrsta skipti síðan 1994 að kanadískt lið kemst í úrslitaleikinn en þá voru það Vancouver Canucks sem mættu New York Rangers í æsispennandi einvígi.