Fréttir

Total items: 1194

2. flokkur kveður með glæsibrag

Dags: 15.05.2004 09:08


Enda þótt æfingatímabilinu í íshokkí væri formlega lokið átti enn eftir að leika tvo leiki í Íslandsmóti 2. flokks en SA átti eftir leik við Björninn og SR hér fyrir sunnan. Í gærkvöldi mættu fyrst okkar strákar SA í Egilshöllinni. Leikurinn var athyglisverður fyrir þær sakir að bæði liðin höfðu ekki stigið á ís í a.m.k. tvær vikur og leikmenn því ekki í besta leikformi. SR byrjuðu leikinn af krafti og komust í 2-0 með laglegum og hnitmiðuðum skotum frá Sindra Má Björnssyni. Ekki gat Sindri haldið uppteknum hætti því hann þurfti að yfirgefa leikinn vegna meiðsla í kjölfarið. SA minnkaði muninn í 2-1 en SR-ingar voru ekki á því að missa leikinn frá sér, heldur bættu í og komust í 5-1 með mörkum frá Gauta Þormóðssyni, Kára Valssyni og Svavari Rúnarssyni. SA klóraði í bakkann og gerði næstu tvö mörk, staðan þá 5-3. Það var svo Gauti sem kláraði leikinn með marki úr hraðaupphlaupi og leikurinn endaði 6-3. Þetta var glæsilegur sigur hjá SR, þeir léku allir sem einn og liðsheildin því mjög sterk. Varnarleikurinn var mjög þéttur og SR-ingar gáfu Akureyringunum fá færi. Einstakir leikmenn skiluðu sínu hlutverki einstaklega vel og má þá fyrstan telja Úlfar Andrésson sem var gríðarlega sterkur og vinnusamur. Varnarmennirnir Kári og Svavar, sem annars er nú yfirleitt í sókninni, áttu einnig mjög góðan leik. Svo má heldur ekki gleyma Aroni Levý Stefánssyni markmanni sem var einbeittur allan tímann og varði oft með miklum tilþrifum þau fáu skot sem sluppu í gegnum sterka vörnina. Að lokum má heldur ekki gleyma hlutverki Ágústar Ásgrímssonar sem stjórnaði leiknum af bekknum. Ágúst virðist vera einstaklega laginn við að ná öllu út úr þessu liði því fyrr í vetur stjórnaði hann leik þess gegn Birninum sem vannst stórt. Umgjörðin um leikinn var óvenjuleg því leikurinn fór fram í sólskini! Vesturgluggar hallarinnar voru ekki lengur byrgðir þannig  að kvöldsólin átti greiða leið inn á ísinn. Enda þótt þessar aðstæður sköpuðu skemmtilega umgjörð var erfitt fyrir leikmennina að leika í sólskini! En þetta undirstrikar það að nú er komið vor og tímabilið úti.