Dags: 10.05.2004 10:48

Í gærkvöldi tryggðu Kanadamenn sér heimsmeistaratitilinn í íshokkí er þeir lögðu Svía í stórskemmtilegum úrslitaleik, 5-3. Leikurinn var mjög kaflaskiptur en Svíar komust fyrst í 0-2 og svo 1-3 í byrjun annars leikhluta en þá skelltu Kanadamenn í lás, þéttu vörnina og markvörður þeirra, Roberto Luongo, varði allt sem fór í gegnum vörnina. Á sama tíma gerðu varnarmenn Svía sig seka um hver mistökin á fætur öðru, jafnvel sjálfur Niklas Lidström, og Kanadamenn gengu á lagið og skoruðu 4 mörk í röð án þess að Svíar næðu að svara fyrir sig. Eitt þessara marka var reyndar glæsilegt sjálfsmark hjá Magnus Nylander sem tók pökkinn á lofti og með mikilli sveiflu hamraði hann í eigið mark! Í þessum leik sýndu Kanadamenn að þeir gefast aldrei upp á meðan Svíar virtust ekki eiga svar við sterkri pressu og hörðum leik. Jafnvel leikmenn einsog Peter Forsberg, sem annars átti snildarsendingu sem gaf annað mark Svía, virtust eiga erfitt með að bregðast við þessum leik Kanadamanna. Það var ekki fyrr en í stöðunni 4-3 að Svíar brettu upp ermarnar og pressuðu stíft. En allt kom fyrir ekki. Kanada virtist hafa þetta í hendi sér, leikgleðin og sigurviljinn miklu meiri og svo höfðu þeir Dany Heatley en hann sýndi snilldartilþrif í leiknum, lagði upp mark mikilvægt og skoraði annað. Sigur Kanada var því verðskuldaður – dagsformið var þeirra. Í leik um bronsið unnu Bandaríkjamenn Slóvaka í víatkeppni en ekkert mark var skorað í venjulegum leiktíma eða í framlengingu.